Fotbolti.net
06.02.24 - 17:01
Elvar Geir Magnússon

Asíubikarinn: Spútniklið Jórdaníu í úrslit eftir sigur gegn Son og félögum

Jórdanía vann óvæntan sigur gegn Suður-Kóreu.

Jórdanía vann óvæntan sigur gegn Suður-Kóreu.

Canon

Mynd: EPA

Jórdanía 2 - 0 Suður-Kórea
1-0 Yazan Al-Naimat ('53)
2-0 Mousa Suleiman ('66)
Jórdanía mun leika til úrslita um Asíubikarinn á laugardag en þetta spútniklið keppninnar vann Suður-Kóreu 2-0 í undanúrslitaleik sem var að ljúka. Sigurinn var algjörlega sanngjarn og liðsframmistaða Jórdana til háborinnar fyrirmyndar.

Jórdanir eru í 87. sæti heimslistans og var þeirra besti árangur í Asíubikarnum fram að þessu móti að komast í 8-liða úrslitin.

Suður-Kórea, með Son Heung-min sem sína skærustu stjörnu og Jurgen Klinsmann sem þjálfara, hefur ekki verið sannfærandi á mótinu en var samt sem áður talið sigurstranglegasta liðið fyrir undanúrslitin.

Yazan Al-Naimat, sem spilar í Katar, og Musa Al-Taamari, leikmaður Montpellier í Frakklandi skoruðu mörkin.

Íran og Katar mætast í hinum undanúrslitaleiknum og fer sá leikur fram á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.