Ainsley Maitland-Niles vildi ekki rotna á bekknum hjá Arsenal út tímabilið og ákvað þess vegna að ganga í raðir West Brom í janúar.
Maitland-Niles greinir sjálfur frá þessu en hann gerði lánssamning við West Brom út þetta tímabil.
Tækifærin voru af skornum skammti á Emirates og fór Maitland-Niles því í fallbaráttuna í úrvalsdeildinni.
„Þetta er annað lán og þú endar á því að snúa aftur til félagsins á endanum," sagði Maitland-Niles.
„Þetta var bara betra tækifæri fyrir mig að sýna hvað í mér býr annað en að rotna á bekknum út tímabilið."
„Það er ekkert betra en að fá að spila. Ég taldi að það væri gott að upplifa hvernig fólk reynir að bjarga sínum ferli og halda sér í ensku úrvalsdeildinni."
Athugasemdir