06.03.21 - 11:52
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Man City og Man Utd
Leikurinn er klukkan 16:30 á sunnudag


Mynd: Guardian


Mynd: Guardian
Tvö efstu lið ensku úrvalsdeildarinnar; Manchester City og Manchester United, mætast á morgun sunnudag klukkan 16:30 á Etihad.
City er með fjórtán stiga forystu í deildinni og hefur verið að endurheimta menn af meiðslalistanum.
Ilkay Gundogan og John Stones byrjuðu á bekknum þegar City vann Wolves í miðri viku en koma líklega inn í byrjunarliðið.
City er með fjórtán stiga forystu í deildinni og hefur verið að endurheimta menn af meiðslalistanum.
Ilkay Gundogan og John Stones byrjuðu á bekknum þegar City vann Wolves í miðri viku en koma líklega inn í byrjunarliðið.

David de Gea er á Spáni en hann varð pabbi í vikunni og Dean Henderson stendur vaktina í marki Manchester United. Það verður í fyrsta sinn sem hann spilar tvo deildarleiki í röð fyrir félagið.
Anthony Martial er tæpur fyrir leikinn en hann hefur verið að glíma við minniháttar hnémeiðsli. Victor Lindelöf hefur verið að spila í gegnum bakmeiðsli en ætti að koma inn í byrjunarliðið á morgun.
Manchester United hefur verið í brasi sóknarlega að undanförnu en síðast þegar þessi grannar mættust enduðu leikar 0-0, í desember, í vægast sag leiðinlegum fótboltaleik.
Heimild: Guardian
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Everton | 9 | 0 | 13 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |
