Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 06. mars 2021 13:25
Aksentije Milisic
Sjáðu hörmuleg mistök Xhaka þegar Burnley jafnaði
Mynd: Getty Images
Nú er leikur Burnley og Arsenal í gangi en spilað er á Turf Moor.

Skytturnar byrjuðu vel og skoraði fyrirliði liðsins, Pierre-Emerick Aubameyang, fyrsta mark leiksins á sjöttu mínútu eftir undirbúning frá Willian.

Arsenal var betra liðið í fyrri hálfleiknum og hefði geta bætt við fleiri mörkum. Það gerðist ekki og var liðinu refsað harkalega undir lok hálfleiksins.

Granit Xhaka gerði skelfileg mistök. Hann var með knöttinn inn í eigin vítateig og ætlaði að senda hann til hægri á David Luiz. Það vildi ekki svo betur til en að hann skaut beint í magann á Chris Wood og þaðan fór boltinn í netið.

Þetta var fyrsta marktilraun, ef svo má kalla, Burnley í leiknum. Markið má sjá hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner