Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   fös 06. mars 2026 11:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Reglubreytingar til að bæta flæði leiksins að öllum líkindum innleiddar í íslenska boltann
Tíu sekúndur fyrir leikmann að koma sér af velli þegar honum er skipt út af.
Tíu sekúndur fyrir leikmann að koma sér af velli þegar honum er skipt út af.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ef dómara finnst leikmaður taka of langan tíma í innkast má hann hefja fimm sekúndna niðurtalningu.
Ef dómara finnst leikmaður taka of langan tíma í innkast má hann hefja fimm sekúndna niðurtalningu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sama gildir um markspyrnur.
Sama gildir um markspyrnur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nokkrar reglubreytingar í fótboltanum eru yfirvofandi og verða að öllum líkindum innleiddar í íslenska boltann. Þær fela í sér að hafa hemil á leiktöfum. Breytingarnar voru samþykktar af stjórn IFAB (International Football Association Board) í lok síðasta mánaðar.

Dómarar á HM í sumar munu dæma út frá þessum reglubreytingum.

Í fyrra var sett á átta sekúndna regla þar sem markmenn mega að hámarki halda á boltanum í átta sekúndur áður en þeir koma honum í leik. Ef sú regla er brotin skal andstæðingurinn fá hornspyrnu. Sú reglubreyting hefur virkað vel og í tengslum við hana á núna að takmarka tíma sem taka má í markspyrnur og innköst.

Ef dómari er á því að tekinn sé of langur tími í innköst eða markspyrnur mun dómarinn hefja fimm sekúndna niðurtalningu. Ef boltinn er ekki kominn í leik eftir það þá mun andstæðingurinn fá boltann.

Í tilfelli innkasta mun andstæðingurinn fá innkast en þegar markspyrnur taka of langan tíma mun andstæðingurinn fá hornspyrnu.

Þá verður sett hámark á tímann sem má taka í skiptingu. Leikmaður skal vera kominn af velli innan tíu sekúndna frá því að greint er frá því að leikmaðurinn skyldi fara af velli. Ef það næst ekki má nýr leikmaður ekki koma inn fyrr en í fyrsta lagi mínútu seinna - þegar boltinn fer úr leik.

Einnig kemur fram að ef leikmaður fær aðhlynningu sem verður til þess að stöðva þar leik, þá þarf leikmaðurinn að vera utan vallar í eina mínútu eftir að leikurinn fer aftur af stað eftir stoppið. IFAB ætlar að skoða áfram leiðir til að koma í veg fyrir taktísk meiðsli hjá markvörðum.

Líklegt er að þessar lagabreytingar verði á Íslandi á komandi tímabili. Ísland hefur mjög oft verið fyrsta landið til að innleiða reglubreytingar þar sem hér er spiluð sumardeild.

VAR breytingar
Á fundinum voru einnig gerðar nokkrar breytingar á VAR reglunum. Eftir að breytingarnar ganga í gegn má VAR skerast í leikinn ef leikmaður fær rauða spjaldið fyrir klárlega óréttlátt seinna gula spjald.

VAR má líka stíga inn í ef dómari leiksins gefur leikmanni spjald þegar hitt liðið var í raun brotlegt.

Í sumum keppnum má VAR svo breyta ákvörðunum þegar dómari leiksins dæmir ranglega hornspyrnu og VAR getur séð það tafarlaust. Þessi breyting verður ekki innleidd í allar keppnir.

Eins og er ekki VAR í íslenska boltanum.
Athugasemdir
banner
banner