Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 06. apríl 2020 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Cahill: Mount mest spennandi leikmaður deildarinnar
Mason Mount fær mikið hrós hjá Tim Cahill.
Mason Mount fær mikið hrós hjá Tim Cahill.
Mynd: Getty Images
Ástralinn Tim Cahill ræddi við Sky Sports á dögunum þar sem hann greindi frá því hver væri mest spennandi leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar að hans mati.

Fyrir valinu varð Mason Mount leikmaður Chelsea, Englendingurinn ungi hefur átt mjög gott tímabil undir stjórn Frank Lampard.

„Mér finnst gaman að fylgjast með Mason Mount, hann er frábær markaskorari og á framtíðina fyrir sér," sagði Cahill.

„Ein af ástæðunum fyrir því að ég kann mikið að meta Mount er sú að hann verður sífellt líkari stjóra sínum sem leikmaður. Lampard leiðbeinir honum hvernig best sé að gera hlutina."

„Það er greinilegt að hann hefur tekið miklum framförum á tímabilinu. Ég er mikill aðáandi hans," sagði Tim Cahill að lokum um Mount.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner