Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 06. apríl 2020 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Tierney: Martinelli getur orðið heimsklassa leikmaður
Gabriel Martinelli.
Gabriel Martinelli.
Mynd: Getty Images
Skotinn Kieran Tierney kom til Arsenal frá Celtic síðasta sumar, hann hefur ekki náð að sýna sínar bestu hliðar enn sem komið er þar sem hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla.

Einn leikmaður Arsenal hefur þó heillað Tierney meira en annar, það er Brasilíumaðurinn ungi Gabriel Martinelli.

„Martinelli getur orðið heimsklassa leikmaður. Hann er hungraður í að ná árangri, hann hefur allt sem þarf til þess að geta orðið heimsklassa leikmaður."

„Þegar ég æfði fyrst með aðalliðinu var ég settur á móti Martinelli, hann er sterkur og hæfileikaríkur strákur, eftir að hafa mætt honum fékk það mig til að hugsa minn gang, hvað ég þyrfti að geta til að spila með Arsenal," sagði Tierney.

Athugasemdir
banner
banner
banner