Frank Lampard tekur við Chelsea út tímabilið (Staðfest)

Frank Lampard

Mynd: Getty Images

Frank Lampard

Mynd: Getty Images
Frank Lampard var í dag kynntur sem nýr stjóri Chelsea en hann mun stýra liðinu út tímabilið.
Lampard hafði verið án starfs síðan í janúar er hann var látinn fara frá Everton.
Chelsea rak Graham Potter úr starfi á dögunum og hefur Lampard nú tekið við taumunum út þessa leiktíð á meðan Chelsea leitar að að stjóra fyrir næstu ár.
Lampard stýrði fyrstu æfingu sinn með Chelsea í dag og var síðan kynntur fyrir nokkrum mínútum.
Hann stýrði Chelsea fyrst frá 2019 til 2021 og kom liðinu meðal annars í úrslit enska bikarsins.
Englendingurinn vann þá þrettán titla hjá félaginu á þrettán árum sínum hjá félaginu sem leikmaður.
„Við erum hæstánægðir með að fá Frank aftur á Stamford Bridge. Frank er í frægðarhöll ensku úrvalsdeildarinnar og goðsögn hjá félaginu. Við viljum útvega ljósa og stöðuga áætlun fyrir félagið og stuðningsmennina út þetta tímabil á meðan við höldum áfram ítarlegu og fullnægjandi ferli að því að finna varanlegan kost í stöðuna. Við viljum gefa okkur alla þá möguleika sem við eigum til að ná árangri og er Frank með gæðin og alla eiginleikana sem þarf til þess að koma okkur yfir endalínuna.“
„Við eigum mikilvægan leik gegn Wolves á laugardag og munum svo fara í það að einbeita okkur að leiknum gegn Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku. Frank mun fá fullan stuðning frá okkur og er markmiðið að útkoman verði sem allra best í þeim leikjum sem eftir eru,“ sögðu Todd Boehly og Behdad Eghbali, eigendur Chelsea.

Frank Lampard returns as Caretaker Manager until the end of the season. ????
— Chelsea FC (@ChelseaFC) April 6, 2023