Fotbolti.net
06.04.23 - 15:01
Brynjar Ingi Erluson

Hörður Ingi aftur heim í FH (Staðfest)

Hörður Ingi aftur heim í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Ingi Gunnarsson er genginn aftur í raðir FH frá norska félaginu Sogndal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH-ingum í dag.
FH-ingurinn var keyptur til Sogndal frá FH í byrjun síðasta árs en hann spilaði 26 leiki og skoraði 2 mörk í deild- og bikar í Noregi á tímabilinu.

Hörður, sem er fæddur árið 1998, á 66 leiki í efstu deild hér á landi, flesta með FH.

Hann er nú mættur heim í Hafnarfjörðinn og mun spila með liðinu á komandi tímabili.

Bakvörðurinn hefur einnig spilað fyrir ÍA og Víking Ólafsvík hér á landi og á þá 2 A-landsleiki að baki.

Hörður verður væntanlega klár í slaginn er FH mætir Fram í fyrstu umferð Bestu-deildarinnar á mánudag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.