Fotbolti.net
06.05.22 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Myndband: Karólína með stoðsendinguna eftir gott spil

Karólína Lea í leiknum.

Karólína Lea í leiknum.

Canon

Mynd: Mirko Kappes

Kvennaboltinn
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lék í kvöld sinn fyrsta byrjunarliðsleik með stórveldinu Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni. Bayern vann 0-3 sigur gegn Bayer Leverkusen.
Karólína, sem er tvítuga að aldri, hefur átta sinnum komið inn á sem varamaður í deildinni á þessari leiktíð en lék í fyrsta sinn í byrjunarliðinu í kvöld.

Hún nýtti tækifærið vel því henni tókst að leggja upp mark eftir frábæra sókn.

Myndband af markinu má sjá hér að neðan; afskaplega góður samleikur þarna.

Glódís Perla Viggósdóttir var einnig í byrjunarliði Bayern, en hún og Karólína koma báðar til með að vera í landsliðshópi Íslands á EM í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.