Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. maí 2022 08:00
Fótbolti.net
Vilhjálmur Alvar dæmir í Krikanum í kvöld
Vilhjálmur Alvar dæmir FH - Val í kvöld.
Vilhjálmur Alvar dæmir FH - Val í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
4. umferð Bestu deildar karla hefst í kvöld með leik FH og Vals í Kaplakrika en leikurinn hefst klukkan 18:00. FH hefur þrjú stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar á meðan Valur er með fullt hús.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mun dæma í Krikanum í kvöld en aðstoðardómarar verða þeir Birkir Sigurðarson og Eðvarð Eðvarðsson. Jóhann Ingi Jónsson verður fjórði dómari og formaður dómaranefndar, Halldór Breiðfjörð Jóhannsson, verður eftirlitsmaður.

Á morgun verða fjórir leikir, þar á meðal viðureign tveggja liða sem eru án sigurs; Keflavík og ÍBV. Ívar Orri Kristjánsson dæmir þann mikilvæga leik.

föstudagur 6. maí
18:00 FH-Valur (Vilhjálmur Alvar Þórarinsson)

laugardagur 7. maí
14:00 ÍA-Breiðablik (Einar Ingi Jóhannsson)
16:00 Keflavík-ÍBV (Ívar Orri Kristjánsson)
16:15 Stjarnan-Fram (Pétur Guðmundsson)
16:15 KR-KA (Elías Ingi Árnason)

sunnudagur 8. maí
19:15 Leiknir R.-Víkingur R. (Dómari hefur ekki verið opinberaður)

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner