Davíð Oddsson: Lars er afskaplega aðlaðandi
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Oddsson, fyrrum borgarstjóri, forsætisráðherra og seðlabankastjóri og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins og forsetaframbjóðandi var kampakátur eftir 4-0 sigur landsliðsins gegn Liechtenstein í kvöld.
Davíð hefur mikla trú á íslenska liðinu og sendi þeim skilaboð í lok viðtalsins.

„Þetta er mjög gott. Ég spáði reyndar 3-0 en það fór 4-0. Það er gaman að Eiður skyldi fá markið sem hann átti svo sannarlega skilið að fá.\"
„Ég held að við getum átt góða von. Það er ekki rétt að vera með óraunverulegar væntingar en góða von. Ég trúi því að þeir komist í næstu umferð í mótinu. Við höfum sýnt það í þessari lotu að það er ekki óraunhæft að gera kröfur til liðsins.\"
Davíð segir ráðninguna á Lars Lagerback sem landsliðsþjálfara hafa verið happavinning.
„Hann hefur staðið sig rosalega vel maðurinn. Það var mikil heppni að fá hann, þetta var happavinningur að fá hann. Ég held að hann hafi mjög mikið að segja fyrir árangurinn og fyrir stemninguna. Ég þekki nú manninn ekki en hann virðist afskaplega aðlaðandi.\"
Skilaboð Davíðs til landsliðsstrákana:
„Haldið sama styrk og sömu samstöðu og þið hafið gert hingað til. Þá getur allt gerst.\"
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.