Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. júní 2020 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einherji fær til sín tvo leikmenn frá Bretlandi (Staðfest)
Mynd: Einherji
Einherji hefur samið við tvo unga leikmenn sem kom til Vopnafjarðar frá Bretlandi.

Ben King frá Carson-Newman. Hann getur spilað flestar stöður hægra megin á vellinum.

Recoe Martin kemur frá MK Dons, sem er í C-deild á Englandi. Recoe getur leyst allar stöður í fremstu röð, en hann hefur leikið með unglingaliðum MK Dons og staðið sig vel. Hann vakti meðal annars athygli enskra úrvalsdeildarfélaga en er nú mættur til Vopnafjarðar.

Einherji segir að þessir leikmenn styrki liðið til muna fyrir 3. deildina í sumar. Þjálfari Einherja er Bretinn Ashley Civil.


Athugasemdir
banner
banner
banner