Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 06. júní 2021 07:30
Victor Pálsson
Courtois: 100 prósent að Hazard verði áfram
Mynd: EPA
Thibaut Courtois er 100 prósent viss um að Eden Hazard verði áfram hjá félaginu í sumar.

Hazard er orðaður við brottför frá Real en hann hefur ekki staðist væntingar á Spáni síðustu tvö árin.

Chelsea er orðað við Belgann en hann var hjá enska félaginu áður en Real borgaði 100 milljónir evra fyrir leikmanninn.

Courtois telur að Hazard sé ekki á förum en meiðsli hafa sett stórt strik í reikning hans á Santiago Bernabeu.

„Ég er 100 prósent viss um að hann verði áfram. Hann vill ekki færa sig um set," sagði Courtois.

„Það er bara pressan í Madríd sem skrifar um hans vilja til að fara. Hann vill ná að spila meiðslalaus og vinna titla."
Athugasemdir
banner
banner