Gittens til Chelsea - Gyökeres til Man Utd - Tvö ný nöfn á óskalista Arsenal - Díaz til Barcelona?
   fös 06. júní 2025 08:31
Elvar Geir Magnússon
Glasgow
„Man Utd gerði mistök“ - Robertson og Arnar töluðu um McTominay
Fjölmiðlafulltrúi skoska landsliðsins og Andy Robertson á fréttamannafundinum í gær.
Fjölmiðlafulltrúi skoska landsliðsins og Andy Robertson á fréttamannafundinum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Scott McTominay var valinn verðmætasti leikmaður ítölsku A-deildarinnar.
Scott McTominay var valinn verðmætasti leikmaður ítölsku A-deildarinnar.
Mynd: EPA
Scott McTominay er vinsælasti maður Skotlands í dag en það leynir sér ekki í aðdraganda vináttulandsleik Skotlands og Íslands. Á fréttamannafundum gærdagsins voru fjölmiðlamenn duglegir að spyrja út í miðjumanninn öfluga.

McTominay er nýkominn úr algjörlega frábæru fyrsta tímabili sínu hjá Napoli þar sem hann var einn besti leikmaður deildarinnar og lykilmaður í meistaratitli liðsins.

Andy Robertson, bakvörður Liverpool og fyrirliði skoska landsliðsins, samgleðst liðsfélaga sínum í landsliðshópnum og segir ljóst að Manchester United hafi gert mistök með því að selja hann á síðasta ári.

„Ég held að hann hafi farið til Napoli ákveðinn í að sanna sig. Hann vildi sýna að Man United og gagnrýnendur hefðu haft rangt fyrir sér. Hann hefur náð að gera það mjög vel. Hann á hrós skilið, hugarfar hans og ákveðni eru til fyrirmyndar," segir Robertson.

„Manchester United gerði mistök með því að gefa honum ekki stöðugan spiltíma, hann var inn og út úr liðinu. Hann fékk líklega ekki þá virðingu sem hann átti skilið. McTominay er sigurvegari og það sést á æfingum hjá okkur."

Hættuleg hlaup í teiginn
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, var einnig spurður út í McTominay á fréttamannafundi í gær.

„McTominay hefur staðið sig mjög vel á Ítalíu. Ég er stuðningsmaður United, en er ekki mjög stoltur af því eins og er! United byggir á yngri leikmönnum sem koma upp og þróast svo það var erfitt að sjá hann fara," sagði Arnar.

„Hann hefur sýnt karakter sinn og nýja hlið í sinni spilamennsku. Allir vissu að það eru mörk í honum. Það er mjög erfitt að eiga við hann í teignum. Það er eitthvað sem við þurfum að vera meðvitaðir um í leiknum því hann tímasetur hlaup sín svo vel frá miðjunni. Þegar miðjumaður skorar mörk og stoðsendingar eykst verðmætið sífellt."

Leikur Skotlands og Íslands verður klukkan 18:45 í kvöld á Hampden Park.
Athugasemdir