Fotbolti.net
06.06.25 - 10:10
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Glasgow

Robertson um leikinn gegn Íslandi og stöðu sína hjá Liverpool

Andy Robertson er fyrirliði skoska landsliðsins.

Andy Robertson er fyrirliði skoska landsliðsins.

Canon

Mynd: EPA

Lengjan
Andy Robertson er fyrirliði skoska landsliðsins og hann ræddi við fjölmiðlamenn á fréttamannafundi á Hampden Park, þar sem Skotland og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld.

Skotland hefur aðeins unnið einn af síðustu níu vináttulandsleikjum og landsliðsþjálfarinn Steve Clarke leggur mikla áherslu á að sitt lið lagi þessa tölfræði.

„Þjálfarinn hefur verið mjög skýr við okkur í þessari viku að árangur okkar í vináttulandsleikjum hefur ekki verið góður. Við viljum upplifa sigurtilfinningu aftur. Það eru mikilvægir mánuðir framundan í undankeppni HM og vonandi getum við nýtt þennan glugga til að koma á góðri siglingu í það verkefni," segir Robertson.
Þjálfari Skota: Engin tilraunastarfssemi gegn Íslandi
TENGT EFNI

Þjálfari Skota: Engin tilraunastarfssemi gegn Íslandi

Ég er ekki vitlaus
Robertson ræddi svo við breska ríkisútvarpið og var spurður út í sína stöðu hjá Liverpool. Frammistaða Robertson með Liverpool hefur dalað og byrjunarliðssæti hans er í hættu en félagið er að vinna í því að kaupa Milos Kerkez frá Bournemouth.

„Ég er ekki vitlaus. Ég fylgist með og veit vel að hann gæti komið. Ég hef trú á eigin hæfileikum og er með sjálfstraust. Það drífur mig áfram. Ég hef átt átta frábær ár hjá Liverpool, lyft bikurum og átt fast sæti í liðinu. Það er eitthvað sem ég er gríðarlega stotur af," segir Robertson.

„Ég er ekki að yngjast. Ég get ekki breytt aldrinum en ég tel mig enn hafa mikið fram að færa og ég einbeiti mér að því. Ég hugsa um sjálfan mig, ég get ekki verið að einbeita mér að öðrum mönnum eða þeim sem þú ert í samkeppni við. Ég er 31 árs og er klár í alla leiki, ég hef ekki misst út æfingu og það eru ekki merki um einstakling sem er að hægjast á."

„Ég á eitt ár eftir af samningnum við Liverpool. Ég hlakka til að fara í frí og svo horfi ég á undirbúningstímabilið. Hvað framtíðin mun svo bera í skauti sér? Ég hef ekki hugsað of mikið um það."
Robertson á fréttamannafundi á Hampden Park.

Robertson á fréttamannafundi á Hampden Park.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.