Fotbolti.net
06.06.25 - 08:47
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Glasgow

Þjálfari Skota: Engin tilraunastarfssemi gegn Íslandi

Steve Clarke á fréttamannafundi í gær.

Steve Clarke á fréttamannafundi í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Lengjan
„Ég held að þið séuð farnir að þekkja mig ansi vel núna. Við erum ekki mikið í tilraunastarfssemi," sagði Steve Clarke, landsliðsþjálfari Skotlands, á fréttamannafundi. Skotland og Ísland mætast í vináttulandsleik í kvöld.

Clarke mun stilla upp sterku liði í leiknum en Skotland er eins og Ísland að búa sig undir undankeppni HM í haust.
Martínez hrósar Clarke: Spila eins og félagslið
TENGT EFNI

Martínez hrósar Clarke: Spila eins og félagslið

„Ísland er gott lið og við gætum lent í vandræðum ef við gerum þetta ekki almennilega," sagði Clarke en hann býst við skemmtilegum fótboltaleik.

„Íslenska landsliðið hefur staðið sig vel á undanförnum árum. Þeir eru líklega ekki ánægðir með það hvernig gekk hjá þeim í Þjóðadeildinni en eru hugaðir í sínum sóknarleik. Þetta ætti að vera skemmtilegur leikur annað kvöld."

Clarke hefur verið landsliðsþjálfari Skotlands síðan 2019 en á árum áður var hann aðstoðarmaður Jose Mourinho hjá Chelsea en einnig hefur hann verið í þjálfarateymi Liverpool, West Ham, Newcastle og Aston Villa,
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.