06.07.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Bojan Krkic lánaður til Ajax (Staðfest)

Bojan Krkic

Mynd: Getty Images

Bojan Krkic

Mynd: Getty Images
Hollenska meistaraliðið Ajax er að fá spænska sóknarmanninn Bojan Krkic á láni út leiktíðina frá Barcelona.
Bojan, sem er 22 ára gamall, er uppalinn hjá Barcelona, en hann hefur leikið 104 leiki og skorað 26 mörk fyrir félagið.
Hann var á tíma yngsti leikmaður félagsins, en var síðan lánaður til AS Roma á Ítalíu í eitt tímabil áður en hann var lánaður til AC Milan.
Bojan fór aftur til Barcelona, en hann hefur nú komist að samkomulagi við Ajax um að fara lán til þeirra út leiktíðina. Það leit út fyrir í fyrstu að hann færi til Real Betis á láni, en hann skipti um skoðun og mun spila með Ajax.
Hjá Ajax spilar íslenski framherjinn Kolbeinn Sigþórsson, en það verður mikil barátta um stöðu í liðinu á komandi leiktíð.