Fotbolti.net
06.07.13 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Faraoni til Watford (Staðfest)

Faraoni á 10 leiki að baki með Udinese og 14 með Inter.

Faraoni á 10 leiki að baki með Udinese og 14 með Inter.

Canon

Mynd: Getty Images

Umboðsmaður Marco Davide Faraoni staðfestir að varnarmaðurinn hefur samþykkt að ganga til liðs við Watford.

Faraoni er aðeins einn átta leikmanna sem er á leið til Watford á næstu dögum, en félagið rétt missti af úrvalsdeildarsæti á síðasta tímabili og ætlar sér ekki að missa af því aftur.
Faraoni spilar sem hægri bakvörður og segir Giovanni Bia, umboðsmaður hans, að aðeins eigi eftir að staðfesta félagsskiptin formlega.

,,Það er búið að ljúka nánast öllum viðræðum svo við getum staðfest að Davide sé leikmaður Watford þó það hafi ekki verið staðfest opinberlega af félaginu,\" segir Bia.

,,Með þessum hætti spilar leikmaðurinn enn fyrir lið í Pozzo fjölskyldunni þó hann sé að fara að skrifa undir nýjan fimm ára samning.

,,Ákvörðunin var tekin til að gefa Davide pláss til að vaxa. Enska Championship deildin er fullkomin til að meta gæði ungra leikmanna.\"


Faraoni kom til Udinese frá Inter síðasta sumar en tókst ekki að festa sig í sessi. Hann á landsleiki að baki fyrir öll unglingalandslið Ítalíu frá U16 til U21.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.