Fotbolti.net
06.07.13 - 19:35
Ívan Guðjón Baldursson

Toulalan kominn til Monaco (Staðfest)

Toulalan kominn til Monaco (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðarnir í efstu deild í Frakklandi halda áfram að kaupa stórstjörnur til sín og er Monaco nú búið að bæta franska landsliðsmanninum Jeremy Toulalan við sig.

Toulalan kemur frá Malaga og er 29 ára gamall miðjumaður sem er búinn að skrifa undir tveggja ára samning.
Toulalan verður kynntur opinberlega á mánudaginn og bætist í hóp með leikmönnum eins og Radamel Falcao, Ricardo Carvalho, James Rodriguez og Joao Moutinho sem eru allir komnir til Monaco.

,,Við erum ánægðir með kaupin á Jeremy, gæðin hans og reynslan verða okkur mjög mikilvæg á næsta tímabili,\" sagði Vadim Vasilyev, yfirmaður íþróttamála hjá Monaco.

Toulalan kom til Malaga árið 2011 eftir fimm ára veru hjá Lyon. Kaupverðið er óuppgefið.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.