N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, meiddist í 3-0 sigrinum gegn Watford um helgina.
Hann er tæpur fyrir leik gegn Crystal Palace á morgun vegna meiðslana sem eru aftan á læri. Kante þurfti að fara út af gegn Watford þegar 12 mínútur voru eftir.
„Við vonumst til þess að þetta séu smávægileg meiðsli. Við höldum það, en ég giska á að þetta sé vandamál fyrir leikinn gegn Palace," sagði Frank Lampard, stjóri Chelsea.
Það er stíf leikjadagskrá hjá Chelsea næstu daga en liðið er í harði baráttu um Meistaradeildarsæti.
Athugasemdir