Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 06. ágúst 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
AC Milan fær varnarmann frá Lyon (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið AC Milan hefur gengið frá samningum við franska varnarmanninn Pierre Kalulu en hann gerir fimm ára samning við félagið.

Kalulu er 20 ára gamall hægri bakvörður en hann kemur úr unglingaliði Lyon.

Samningur hans við Lyon rann út í sumar og var honum því frjálst að leita annað.

Hann hefur verið í viðræðum við Milan síðustu daga og í gær staðfesti Milan komu hans til félagsins. Hann, eins og áður segir, gerir fimm ára samning við Milan.

Kalulu á 3 leiki að baki fyrir U20 ára lið Frakklands og 12 leiki fyrir U19 ára landsliðið.
Athugasemdir
banner
banner