Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 06. ágúst 2020 15:15
Ástríðan
Aron Skúli í Hauka (Staðfest)
Aron í leik með KH árið 2018.
Aron í leik með KH árið 2018.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar hafa fengið framherjann Aron Skúla Brynjarsson í sínar raðir frá Kórdrengjum.

Aron Skúli hefur komið við sögu í einum leik í 2. deildinni með Kórdrengjum í sumar en hann lék einnig með liðinu þegar það vann 3. deildina í fyrra.

Aron er uppalinn hjá Breiðabliki en hann hefur einnig leikið með ÍR og KH á ferli sínum.

Haukar eru á toppnum í 2. deildinni, stigi á undan Kórdrengjum.

Í hlaðvarpsþættinum Ástríðunni kom fram að Aron hafi æft með Haukum á dögunum en hann sé fótbrotinn og óvíst hversu lengi hann verður frá.
Ástríðan - Þriðjungsuppgjör og hitamál
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner