Ægir í Þorlákshöfn hefur fengið sóknarmanninn Petar Banovic til liðs við sig fyrir síðari hluta tímabils í 3. deildinni.
Petar er 23 ára gamall en hann hefur lengst af á ferlinum spilað í B-deildinni í Króatíu.
Petar er frá Bosníu/Hersegóvínu en hann á einnig leiki að baki í úrvalsdeildinni í heimalandinu.
Ægir vann 4. deildina í fyrra en liðið er í 7. sæti í 3. deildinni í augnablikinu með tíu stig.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir