Brasilíski varnarmaðurinn Marcal hefur skrifað undir tveggja ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið Wolves.
Hann kemur til félagsins frá Lyon í Frakklandi, en hann tók þátt í því er Lyon komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.
Hann kemur til félagsins frá Lyon í Frakklandi, en hann tók þátt í því er Lyon komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili.
Hinn 31 árs gamli Marcal getur spilað miðvörð og vinstri bakvörð. Hann er annar leikmaðurinn sem félagið fær til sín í sumar eftir að það borgaði metfé fyrir hinn 18 ára gamla Fabio Silva í gær.
Talið er að Wolves borgi Lyon 2 milljónir evra fyrir Marcal.
Úlfarnir höfnuðu í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir