Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 06. september 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pione Sisto aftur til Midtjylland (Staðfest)
Danski kantmaðurinn Pione Sisto hefur verið keyptur aftur til Midtjylland eftir fjögur ár hjá Celta Vigo í spænska boltanum.

Sisto hóf ferilinn hjá Midtjylland og var keyptur til Celta sumarið 2016 fyrir um 5 milljónir evra.

Á dvöl sinni á Spáni skoraði Sisto 18 mörk í 135 leikjum. Hann hefur núna ákveðið að halda aftur heim til Mið-Jótlands, en danska félagið er talið borga 2,5 milljón evra fyrir hann.

Sisto á 21 landsleik að baki fyrir Danmörku en hefur ekki spilað síðan 2018 og er ekki í hópi Dana sem mætir Englandi og Belgíu í Þjóðadeildinni.
Athugasemdir
banner