Bergþóra gerði tveggja og hálfs árs samning við Örebro


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Greint var frá því um mánaðamótin að Bergþóra Sól Ásmundsdóttir væri gengin til liðs við Örebro sem leikur í efstu deild sænska boltans.
Nú hefur það verið staðfest að Bergþóra gerir tveggja og hálfs árs samning við félagið sem gildir út árið 2025.
Bergþóra Sól er fædd 2003 og leikur sem miðjumaður. Hún er uppalin hjá Breiðabliki og lék mikilvægt hlutverk í liðinu í sumar.
Hún er fengin til að hjálpa Örebro í fallbaráttunni, en liðið er aðeins einu stigi fyrir ofan fallsvæðið eftir sigur gegn Norrköping í síðustu umferð.
Bergþóra er gríðarlega efnileg og á 15 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands, þar af tvo fyrir U23 liðið.
Sjá einnig:
Bergþóra Sól til Örebro (Staðfest)
?????????? Vi välkomnar @beggasol till klubben! Den isländska U23-landslagsspelaren Ásmundsdóttir har skrivit på för 2,5 år i klubben. Nu kör vi Begga! ???? pic.twitter.com/9EkcQJDx1S
— KIF Örebro (@KIFOrebro) September 5, 2023


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



