Hinata Miyazawa í Man Utd (Staðfest)

Hinata Miyazawa.

Mynd: Man Utd

Hinata Miyazawa.

Mynd: Man Utd
Manchester United er búið að ganga frá samningi við japönsku landsliðskonuna Hinata Miyazawa.
Miyazawa, sem er 23 ára gömul, var markahæsti leikmaðurinn á HM sem fór fram í Ástralíu og Nýja-Sjálandi núna fyrir stuttu.
Miyazawa spilar á kantinum en hún hefur spilað fyrir Mynavi Sendai í heimalandinu síðan 2021. Þar áður var hún á mála hjá Tokyo Verdy Beleza.
Man Utd hefur verið að reyna að fylla í skarðið sem Alessia Russo skilur eftir sig en enska landsliðskonan fór til Arsenal í sumar.
„Ég er gríðarlega ánægð að vera orðin hluti af þessari fjölskyldu og þessu frábæra liði," sagði Miyazawa.
Það er talið að Liverpool hafi einnig haft áhuga á þessum marksækna leikmanni en hún er núna komin til Man Utd sem verður mikið breytt lið á næstu leiktíð eftir að hafa lent í öðru sæti ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.