Fotbolti.net
06.09.23 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Liverpool fær Haug frá Roma (Staðfest)

Liverpool fær Haug frá Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hertz

Liverpool er búið að krækja sér í mikilvægan liðsstyrk fyrir átök komandi tímabils í efstu deild ensku kvennadeildarinnar.

Sophie Román Haug er gengin til liðs við félagið eftir aðeins eitt ár hjá AS Roma á Ítalíu. Haug er uppalin hjá Lilleström og hefur skorað 8 mörk í 11 landsleikjum með Noregi.

Hún er 24 ára gömul og er kaupverðið sem Liverpool borgar fyrir hana óuppgefið. Þá er ekki heldur tekið fram hversu langan samning hún gerir við félagið.

„Mér líður eins og þetta sé rétt skref fyrir minn feril, ég er mjög spennt fyrir því að spila fyrir Liverpool. Það er eitthvað stórt í uppbyggingu hérna og ég vil vera partur af því. Þetta er sögufrægt félag með langa sögu og mikinn metnað," sagði Haug við undirskriftina.

„Ég er spennt að spila í einni stærstu deild í heimi. Ég er viss um að við verðum erfiðir andstæðingar í vetur."

Liverpool voru nýliðar í efstu deildinni á síðustu leiktíð og enduðu í sjöunda sæti af tólf - með 23 stig úr 22 leikjum.

Liverpool fær Haug frá Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.