Man City fékk Baptiste frá West Ham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Manchester City samdi við varnarmanninn efnilega Jamal Baptiste í sumar og er hann kominn til félagsins á frjálsri sölu eftir að samningur hans við West Ham United rann út.
Baptiste er 19 ára gamall unglingalandsliðsmaður Englands sem Man City er búið að senda beint út á lán til Lommel SK í Belgíu.
Baptiste fékk lítinn sem engan spiltíma með varaliði West Ham á síðustu leiktíð vegna sjaldgæfra veikinda þar sem ónæmiskerfið byrjar að ráðast á taugakerfið.
Nú fær hann tækifæri til að sanna sig hjá Lommel sem leikur í efstu deild belgíska boltans.





