Fotbolti.net
06.09.23 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Thorgan Hazard til Anderlecht (Staðfest)

Thorgan Hazard til Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Belgíska stórveldið Anderlecht er búið að krækja í kantmanninn Thorgan Hazard frá Borussia Dortmund.

Anderlecht borgar fjórar milljónir evra fyrir Hazard, sem er 30 ára gamall og átti aðeins eitt ár eftir af samningi hjá Dortmund.

Hazard lék 122 leiki á fjórum árum hjá Dortmund en náði ekki að festa sig í sessi sem fastamaður í byrjunarliðinu eftir fyrsta tímabilið sitt hjá félaginu.

Hann á 47 landsleiki að baki fyrir Belgíu og verður mikilvæg viðbót við sterkan leikmannahóp Anderlecht sem inniheldur meðal annars Kasper Dolberg, Jan Vertonghen og Kasper Schmeichel.

Þá er Brighton búið að lána Steven Alzate til Standard Liege í Belgíu, en Alzate er 24 ára gamall miðjumaður sem verður samningslaus næsta sumar. Hann þykir ekki nægilega góður fyrir Brighton, en er með sjö landsleiki að baki fyrir Kólumbíu þrátt fyrir að vera fæddur og uppalinn á Englandi.

Thorgan Hazard til Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.