Wolfsburg kaupir markvörðinn frá FCK (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA
Wolfsburg er búið að staðfesta félagsskipti pólska markvarðarins Kamil Grabara frá Danmerkurmeisturunum í FC Kaupmannahöfn.
Grabara er 24 ára gamall og var á mála hjá Liverpool í fimm ár áður en hann skipti yfir til FCK sumarið 2021.
Kaupmannahöfn borgaði um 6 milljónir evra fyrir markvörðinn og hélt Liverpool 20% af endursöluréttinum. Núna er Wolfsburg að greiða um 15 milljónir evra fyrir Grabara, sem þýðir að nokkrar milljónir munu renna í vasa Liverpool.
Grabara mun klára tímabilið með FCK og ganga í raðir Wolfsburg þegar félagsskiptaglugginn opnar næsta sumar. Það er þó ákvæði í kaupsamningnum sem gerir Wolfsburg kleift að ganga frá kaupunum strax í janúar fyrir aðeins hærri upphæð.
Grabara á að taka við markmannsstöðunni af Koen Casteels sem mun yfirgefa Wolfsburg á frjálsri sölu næsta sumar, en Casteels er 30 ára gamall og með 249 leiki að baki fyrir Wolfsburg.


Mynd: Getty Images





