Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 06. október 2019 16:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mount: Bjóst ekki við því að við myndum byrja svona vel
Mynd: Getty Images
Mason Mount er einn af ungu strákunum í liði Chelsea sem hefur verið að standa sig vel í byrjun tímabils.

Mount var á skotskónum þegar Chelsea vann 4-1 útisigur á Southampton í dag.

„Þú verður alltaf að hafa trú á sjálfum þér, en ef ég á að vera hreinskilinn þá bjóst ég ekki við því að við myndum byrja svona vel. Allir eru að leggja mikið á sig, þú sérð hversu miklu máli þetta skiptir okkur," sagði Mount eftir sigurinn í dag.

Chelsea er í fimmta sæti með 14 stig. Hversu mikil áhrif hefur knattspyrnustjórinn Frank Lampard haft á liðið?

„Það er mikil samkeppni um stöður og þú verður alltaf að standa þig vel. Hann sér til þess að leggjum mikið á okkur og að við séum að gera okkar besta til að komast í liðið."

„Það eru miklar breytingar í gangi á liðinu, en við erum ekki að hugsa um það þar sem við viljum enda eins ofarlega og við getum."
Athugasemdir
banner
banner
banner