Vængmaðurinn Felipe Anderson hefur skrifað undir samning við portúgalska stórliðið Porto.
Þetta var staðfest nú í kvöld en Anderson hefur misst byrjunarliðssæti sitt hjá West Ham í ensku úrvalsdeildinni.
Þessi 27 ára gamli leikmaður hefur ekki byrjað leik fyrir West Ham í deildinni á tímabilinu og fékk því grænt ljós á að fara.
Anderson hefur tíma til að skrá sig í Meistaradeildarhóp Porto en hann gerir eins árs langan lánssamning við félagið.
Brassinn hefur spilað með West Ham síðan 2018 en hann kostaði þá 36 milljónir punda frá Lazio.
Athugasemdir