Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. október 2020 17:54
Victor Pálsson
Malang Sarr til Porto (Staðfest)
Mynd: Porto
Porto í Portúgal er búið að tryggja sér varnarmanninn Malang Sarr en hann kemur til félagsins frá Chelsea.

Sarr er nýgenginn í raðir Chelsea en hann kom til félagsins frá Nice á frjálsri sölu fyrr í sumar.

Sarr gerði fimm ára samning við enska félagið sem vildi þó um leið senda hann á lán fyrir meiri spilatíma.

Frakkinn tók vel í þá hugmynd að semja við annað félag á láni og hefur nú gert eins árs langan lánssamning við Potyo.

Sarr er aðeins 21 árs gamall miðvörður en hann lék með Nice í Frakklandi á síðustu leiktíð.

Athugasemdir
banner
banner
banner