Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 06. október 2020 21:58
Victor Pálsson
Mario Götze kominn til PSV (Staðfest)
Mynd: PSV
Þýski miðjumaðurinn Mario Götze hefur skrifað undir samning við PSV Eindhoven í hollensku úrvalsdeildinni.

Þetta var staðfest nú rétt í þessu en fyrr í kvöld var greint frá því að leikmaðurinn væri á leið til Hollands.

Götze var síðast á mála hjá Borussia Dortmund í heimalandinu en var hleypt burt á frjálsri sölu.

Götze náði sér aldrei almennilega á strik með Dortmund eftir að hafa samið við Bayern Munchen árið 2013.

Hann sneri aftur til uppeldisfélagsins eftir misheppnaða dvöl hjá Bayern og þaðan þá ferillinn niður á við.

Götze er 28 ára gamall en hann tryggði Þýskalandi sigur í úrslitum HM árið 2014.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner