Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   þri 06. október 2020 19:17
Victor Pálsson
Van Ginkel til PSV (Staðfest) - Götze á leiðinni
Mario Götze.
Mario Götze.
Mynd: Getty Images
Mario Götze, fyrrum leikmaður Borussia Dortmund, er að skrifa undir tveggja ára samning við PSV Eindhoven í Hollandi.

Mario Götze, fyrrum leikmaður Borussia Dortmund, er að skrifa undir tveggja ára samning við PSV Eindhoven í Hollandi.

Götze er án félags þessa stundina en hann var leystur undan samningi nýlega hjá þýska félaginu.

Götze var á sínum tíma gríðarlegt efni og samdi við Bayern Munchen árið 2013 þar sem hlutirnir gengu ekki upp. Hann sneri seinna aftur til Dortmund þar sem hann er uppalinn.

Þjóðverjinn á að baki 63 landsleiki fyrir Þýskaland en hann er ennþá aðeins 28 ára gamall.

Annar miðjumaður er búinn að krota undir hjá PSV en það er Hollendingurinn Marco van Ginkel sem kemur frá Chelsea.

Van Ginkel gerði lánssamning við PSV en hann spilaði þar á láni frá 2016 til 2018 við góðan orðstír. Van Ginkel er 27 ára gamall.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner