Fotbolti.net
06.11.23 - 10:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jökull búinn að finna sér aðstoðarmann

Við undirskrift í Víkinni fyrir tveimur árum

Við undirskrift í Víkinni fyrir tveimur árum

Canon

Mynd: Víkingur

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, er búinn að finna sér aðstoðarmann. Frá því var greint í Þungavigtinni að Elías Hlynur Lárusson yrði nýr aðstoðarþjálfari Stjörnunnar og rímar það við heimildir Fótbolta.net.

Elías hefur starfað sem yfirþjálfari Barna- og unglingaráðs hjá Víkingi síðustu ár en lét af störfum í lok síðasta mánaðar.
„Elías tók við starfinu af Einari Guðna og hefur leitt okkar góða starf síðan af stakri prýði. Elías æfði með Víking upp alla flokka félagsins og þjálfaði m.a. 5. flokk karla og 3. flokk kvenna," segir í frétt á heimasíðu Víkinga í september.

Úr frétt frá 2021 á heimasíðu Víkings segir að Elías sé með KSÍ B þjálfarapróf og hafi útskrifast með B.Sc. í íþróttafræði. Hann er fæddur árið 1998 og fer mjög gott orð af honum í Víkinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.