Fotbolti.net
06.12.19 - 13:30
Magnús Már Einarsson

Brendan Rodgers framlengir við Leicester (Staðfest)

Brendan Rodgers framlengir við Leicester (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brendan Rodgers hefur skrifað undir nýjan fimm og hálfs árs samning við Leicester.

Rodgers hefur gert frábæra hluti með Leicester síðan hann tók við liðinu fyrr á þessu ári. Leicester er í dag í 2. sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Rodgers hefur verið orðaður við stjórstöðuna hjá Arsenal að undanförnu en nú er ljóst að hann fer ekki fet.

Fyrri samningur Rodgers var til ársins 2022 en orðrómur var um að í honum væri riftunarverð og því gæti annað félag krækt í hann.

Nýi samningurinn er í fimm og hálft ár eða til sumarsins 2025.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.