Gary Neville, fyrrum leikmaður Manchester United, er sérfræðingur hjá Sky Sports.
Í gær tjáði hann sig um Liverpool og forskotið sem það hefur á toppi úrvalsdeildarinnar, Liverpool sigraði Everton á miðvikudagskvöld og leiðir með átta stigum.
„Ef þeir klúðra þessu úr þessu þá verður það besta árið mitt hjá Sky! Sagði Neville á TalkSport.

„Í hreinskilni yrði það eitt það ótrúlegasta sem hægt væri að sjá ef Liverpool nær 12 stiga forskoti og tapar því svo niður fyrir framan augun á mér."
„Ég vona að liðið nái 12 stiga forskot í mars en að allt fari til fjandans í lokin."
„Ég verð samt að segja að með stöðugleikanum sem liðið hefur sýnt undanfarin tvö ár þá hefur liðið spilað bolta sem á skilið titil og í vor náði liðið í stigafjölda sem hefði átt að duga til að lyfta titlinum."
„Liverpool þarf að hafa fyrir því að tapa þessu niður úr þessu. Þeir hljóta að halda að þetta sé árið þeirra," sagði Neville að lokum.
Athugasemdir