„Himinn og haf milli þessara liða í fyrri hálfleiknum," sagði Guðmundur Benediktsson sem lýsir leik Manchester United og Manchester City en þar leiðir City, 0-3, þegar flautað hefur verið til hálfleiks.
Leikurinn er fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum deildabikarsins og er leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Leikurinn er fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum deildabikarsins og er leikurinn sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Bernardo Silva kom Manchester City yfir á 17. mínútu og í kjölfarið fylgdu mörk frá Riyad Mahrez og slysalegt sjálfsmark hjá Andreas Perreira.
Þegar Mahrez skoraði annað markið sagði Gummi Ben að "Ole at the wheel" væri próflaus við stýrið. Þegar Raheem Sterling fékk dauðafæri skömmu eftir annað markið sagði Gummi: „Ja hérna hér," já útlitið, í það minnsta í þessum leik, er ekki bjart fyrir Manchester United.
135 mínútur eru eftir af viðureigninni.
Athugasemdir