Sóknarmaðurinn Eiríkur Þór Bjarkason mun spila með Hvíta riddaranum næsta sumar.
Eiríkur Þór hefur allan sinn meistaraflokks feril leikið með Hvíta riddaranum fyrir utan tímabilið í fyrra þar sem hann spilaði með Hugin/Hetti í 3. deild. Þar skoraði hann þrjú mörk í 17 leikjum í deild og bikar.
Hann átti stórgott tímabil 2019 með Hvíta riddaranum þar sem hann var markakóngur í 4. deild. Eiríkur skoraði þá 22 mörk í 13 leikjum og vonast stuðningsmenn Hvíta riddarans eflaust til að sjá hann eiga álíka sumar á þessu ári.
Hvíti riddarinn hafnaði í 4. sæti D-riðils 4. deildar karla síðasta sumar.
Hér að neðan má sjá skemmtilegt myndband sem Hvíti riddarinn gerði í tilefni af endurkomu Eiríks.
TÍÐINDI🚨🚨🚨@eirikurbjarka pic.twitter.com/sniiOpDuzc
— Hvíti Riddarinn (@HvitiRiddarinn) January 6, 2021
Athugasemdir