Bikarleikur Liverpool og Shrewsbury mun fara fram á sunnudag þrátt fyrir smit hjá félaginu. Bæði Jurgen Klopp og Pepijn Lijnders, sem stýrði síðasta leik í fjarveru Klopp, eru fjarri góðu gamni vegna Covid smita.
Æfingasvæði Liverpool hefur verið lokað undanfarna daga en er opið að nýju.
Æfingasvæði Liverpool hefur verið lokað undanfarna daga en er opið að nýju.
Annar aðstoðarmaður Klopp, Peter Krawietz, stýrir undirbúningnum gegn C-deildarliðinu og mun sitja fyrir svörum á fréttamannafundi í dag.
Klopp ætti að vera laus úr einangrun fyrir leikinn sjálfan
Liverpool mun tefla fram liði sem er blandað af aðalliðshópnum og yngri leikmönnum.
Mohamed Salah, Sadio Mane og Naby Keita eru farnir í Afríkukeppnina. Markvörðurinn Alisson, varnarmaðurinn Joel Matip og framherjinn Roberto Firmino misstu af 2-2 jafnteflinu gegn Chelsea um síðustu helgi vegna Covid.
Athugasemdir