Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 07. janúar 2023 20:38
Ívan Guðjón Baldursson
Frakkland: Áhugamenn unnu gegn atvinnumönnum
Mynd: Heimasíða Nice
Frönsku efstudeildarfélögin Mónakó og Nice eru úr leik í franska bikarnum eftir leiki dagsins. Clermont sem er einnig í efstu deild datt þá úr leik gegn áhugamannaliði úr sjöttu efstu deild franska deildakerfisins.

Þessi dagur hefur komið frönskum fótboltaunnendum í opna skjöldu þar sem ekki var búist við að þessi félög myndu tapa leikjum sínum í dag.

Mónakó er í fimmta sæti frönsku deildarinnar og komst í tveggja marka forystu gegn B-deildarliði Rodez en gestirnir náðu að koma til baka og jafna. Þeir knúðu leikinn þannig í vítaspyrnukeppni og höfðu betur.

Nice tapaði á útivelli gegn Le Puy-en-Velay sem leikur í C-deildinni en Clermont tapaði fyrir áhugamannaliði Strasbourg-Koeningshoffen - sem leikur í sjöttu efstu deild.

Marseille, Lens, Lyon og Nantes unnu sína leiki í dag og eru komin áfram í 32-liða úrslitin.

Le Puy-en-Velay 1 - 0 Nice

Strasbourg-Koenigshoffen 0 - 0 Clermont
4-3 eftir vítaspyrnukeppni

Mónakó 2 - 2 Rodez
4-5 eftir vítaspyrnukeppni

Hyeres 0 - 2 Marseille

Linas-Montlhery 0 - 2 Lens

Lyon 2 - 1 Metz

Virois 0 - 2 Nantes


Athugasemdir
banner
banner
banner