Barcelona vill Van de Ven - Bruno bíður - Arsenal fær þau skilaboð að Esposito sé ekki til sölu
   mið 07. janúar 2026 22:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Sesko skoraði tvennu í jafntefli - Svakaleg dramatík í Newcastle
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Man Utd heimsótti Burnley í kvöld í fyrsta leiknum eftir brotthvarf Ruben Amorim á dögunum.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir United þar sem Ayden Heaven varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir fyrirgjöf frá Bashir Humphreys.

Man Utd var með mikla yfirburði í fyrri hálfleik en náði ekki að jafna metin.

Benjamin Sesko skoraði þriðja markið sitt í deildinni í upphafi seinni hálfleiks þegar hann skoraði eftir stungusendingu frá Bruno Fernandes.

Hann kom United síðan yfir stuttu síðar þegar hann stýrði boltanum í netið eftir fyrirgjöf frá Patrick Dorgu. Jaidon Anthony kom inn á sem varamaður hjá Burnley rétt fyrir seinna mark United en hann jafnaði metin þegar hann skoraði með frábæru skoti í fjærhornið.

Hinn 18 ára gamli Shea Lacey kom inn á sem varamaður hjá Man Utd undir lokin og hann var nálægt því að setja mark sitt á leikinn strax en hann átti frábært skot í slána.

Dominic Calvert-Lewin skoraði og lagði upp en hann hefur komið að níu mörkum í síðustu níu leikjum. Brenden Aaronson skoraði tvennu en það stefndi í sigur Leeds þegar hann kom liðinu í 3-2.

Newcastle fékk hins vegar vítaspyrnu í uppbótatíma þegar Aaronson fékk boltann í höndina eftir fyrirgjöf frá Lewis Hall. Bruno Guimaraes skoraði úr vítinu.

Tíu mínútum var bætt við en eftir tólf mínútna uppbótatíma skoraði Harvey Barnes eftir darraðadans inn á teignum og tryggði Newcastle gríðarlega dramatískan sigur.

Burnley 2 - 2 Manchester Utd
1-0 Ayden Heaven ('13 , sjálfsmark)
1-1 Benjamin Sesko ('50 )
1-2 Benjamin Sesko ('60 )
2-2 Jaidon Anthony ('66 )

Newcastle 4 - 3 Leeds
0-1 Brenden Aaronson ('32 )
1-1 Harvey Barnes ('36 )
1-2 Dominic Calvert-Lewin ('45 , víti)
2-2 Joelinton ('54 )
2-3 Brenden Aaronson ('79 )
3-3 Bruno Guimaraes ('90 , víti)
4-3 Harvey Barnes ('90 )
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 29 19 7 3 58 22 +36 64
2 Man City 28 18 5 5 57 25 +32 59
3 Man Utd 28 14 9 5 50 38 +12 51
4 Aston Villa 28 15 6 7 38 30 +8 51
5 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
6 Chelsea 28 12 9 7 49 33 +16 45
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 29 9 13 7 44 46 -2 40
10 Fulham 28 12 4 12 40 42 -2 40
11 Sunderland 29 10 10 9 30 34 -4 40
12 Brighton 28 9 10 9 38 35 +3 37
13 Newcastle 28 10 6 12 40 42 -2 36
14 Crystal Palace 28 9 8 11 30 34 -4 35
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 28 7 8 13 38 43 -5 29
17 Nott. Forest 28 7 6 15 26 41 -15 27
18 West Ham 28 6 7 15 34 54 -20 25
19 Burnley 29 4 7 18 32 58 -26 19
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner
banner