Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 07. febrúar 2021 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Glódís og Mikael á skotskónum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Glódís Perla Viggósdóttir var á skotskónum þegar Rosengård vann 3-0 sigur á Växsjö DFF í æfingaleik á föstudag. Glódís skoraði fyrsta mark leiksins á 23. mínútu.

Rosengård endaði í 2. sæti sænsku deildarinnar í fyrra á meðan Växsjö endaði í 6. sætinu.

Í gær skoraði Mikael Egill Ellertsson þriðja mark Spal í 4-0 sigri liðsins á Ascoli í Primavera deildinni. Primavera er blanda af unglinga- og varaliðsdeild.

Mikael skoraði markið sitt á 60. mínútu. Spal er í 3. sæti sinnar deildar á eftir Juventus og toppliði Roma.

Athugasemdir
banner
banner