Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 07. mars 2022 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stuðningsmenn brjálaðir út í Gueye - Ramos ekki með gegn gömlu félögunum
Mynd: EPA

Það er búist við því að Kylian Mbappe leikmaður PSG missi af síðari leik liðsins gegn Real Madrid í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn en hann meiddist á æfingu í dag.


Mbappe fór í myndatöku eftir að Gueye steig á hann og það kom í ljós að hann er ekki brotinn.

Stuðningsmenn félagsins eru ekki ánægðir með Gueye en hann og eiginkona hans hafa neyðst til að loka fyrir athugasemdir á samfélagsmiðlum þar sem þau hafa fengið slæm viðbrögð.

Mbappe er hinsvegar ekki reiður út í liðsfélaga sinn og deildi mynd á Instagram þar sem hann skrifaði: „Allir saman, allir í París." Mbappe hefur verið sterklega orðaður við Real en hann skoraði eina mark leiksins í fyrri leik liðanna í París.

Þá er Sergio Ramos ekki klár í slaginn en hann hefur verið mikið frá vegna meiðsla eftir komuna til París frá Real Madrid í sumar.


Athugasemdir
banner
banner