Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 07. apríl 2014 17:30
Magnús Már Einarsson
Gamla markið: Rooney smellti honum á lofti
Mynd: Getty Images
Gamla markið er á dagskrá á föstudögum á Fótbolta.net í vetur.

Í dag spólum við baka til ársins 2005 og skoðum mark sem Wayne Rooney framherji Manchester United skoraði gegn Newcastle.

Darren Ambrose kom Newcastle óvænt yfir í leiknum en Rooney jafnaði með frábæru skoti á lofti í síðari hálfleik.

Boltinn barst til Rooney sem skoraði með viðstöðulausu þrumuskoti, gjörsamlega óverjandi fyrir Shay Given. Wes Brown skoraði síðan sigurmarkið í 2-1 sigri United.

Ef þú átt hugmynd að góðu marki til að rifja upp sendu þá tölvupóst á [email protected]

Eldra efni í „gamla markið"


Athugasemdir
banner
banner
banner