Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 07. apríl 2022 14:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carvalho búinn í læknisskoðun hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Fabrizio Romano er hinn 19 ára gamli Fabio Carvalho búinn að fara í læknisskoðun hjá Liverpool.

Carvalho var við það að ganga til liðs við Liverpool á lokadegi félagsskiptagluggans í janúar en skiptin náðu ekki í gegn á réttum tíma.

Romano segir að kaupverðið sé 5 milljónir punda auk 2,7 milljónir árangurstengd upphæð. Hann mun skrifa undir samning til ársins 2027.

Hann er sagður hafa þegar heimsótt æfingasvæði félagsins og rætt við Jurgen Klopp stjóra liðsins.

Félagsskiptin verða opinberið í maí en Fulham mun ekki fá hann til baka á láni eins og hugmyndin var í janúar. Samningur Carvalho hjá Fulham hefði runnið út í sumar en Liverpool borgar fyrir hann af virðingu við Fulham.

Carvalho hefur leikið 28 leiki fyrir topplið Fulham í Championship deildinni á þessari leiktíð og skorað 7 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner