Kaj Leo til Leiknis (Staðfest)


Mynd: Leiknir R


Mynd: Leiknir R

Leiknir R. er búinn að klófesta færeyska kantmanninn Kaj Leo í Bartalsstovu sem mun leika með félaginu í Lengjudeildinni í sumar.
Kaj, sem verður 32 ára í sumar, reynir fyrir sér í Lengjudeildinni í fyrsta sinn eftir að hafa leikið með FH, ÍBV, Val og ÍA í efstu deild.
Kaj býr yfir 7 ára reynslu í efstu deild og gæti reynst gífurlegur liðsstyrkur fyrir Breiðhyltinga er þeir reyna að komast aftur upp í deild þeirra bestu eftir fall í fyrra.
Leiknismenn vonast til að félagsskiptin verði gengin í gegn fyrir leik liðsins gegn FC Árbæ í 2. umferð Mjólkurbikarsins á morgun.
Kaj á 28 landsleiki að baki fyrir Færeyjar og var um stutta hríð leikmaður Dinamo Bucharest í Rúmeníu.
Hann á 12 mörk í 120 leikjum í efstu deild en er afar markheppinn í Mjólkurbikarnum, þar sem hann hefur skorað 9 sinnum í 15 leikjum.
Kaj varð Íslandsmeistari með FH 2016, bikarmeistari með ÍBV 2017 og aftur Íslandsmeistari með Val 2020.




